Gullfoss

| tölvuorðabókin |

Tölvuorðabókin - ýmsir ferlar


Þessi síða sýnir nokkra ferla til að inna af hendi tiltekin verkefni. Í mörgum tilfellum mun notandinn vilja sækja nýja útgáfu af hugbúnaðinum til að hafa það nýjasta sem í boði er:

Sækja endurbótaútgáfu af Tölvuorðabókinni.


FERLAR

Uppsetning á netkerfi

Eftirfarandi eru almennar leiðbeiningar um það hvernig best er að setja Tölvuorðabókina upp á útstöð. Leiðbeiningarnar gera ráð fyrir að til standi að setja inn Ensk-íslensk-enska og Dansk-íslenska pakkann, og hugsanlega Íslensku orðabókina.

  1. Setjast niður við netþjón eða við útstöð sem hefur full réttindi á væntanlegt geymslusvæði orðabókarinnar á netþjóninum. Athugaðu að allar orðabækur eiga að fara inn í eina og sömu möppuna.
  2. Setja inn 3.0 kynslóðina, t.d. Ensk-íslensk-enska og Dansk-íslenska pakkann. Uppsetningin á að keyrast sjálf þegar geisladiskur er settur í drifið, en annars má ræsa Setup.exe.
  3. Sækja endurbót 3.6a fyrir netútgáfu á http://www.alnet.is/ordabok/endurbot.htm og keyra þessa endurbót svo. Að þessu loknu er 3.0 kynslóðin tilbúin.
  4. Setja inn 4.0 kynslóðina þ.e. Íslensku orðabókina.
  5. Sækja endurbót 4.1 fyrir netútgáfu á ofangreindri slóð og keyra svo þessa endurbót.
  6. Setja Tölvuorðabókina upp á útstöð. Það er gert með því að setjast niður við útstöð og leita uppi netþjónsmöppuna sem hefur að geyma forritið og keyra Setup.exe.


Fjarlægja Tölvuorðabókina

Hér er sýnd fljótleg aðferð við að fjarlægja Tölvuorðabókina. Með þessari aðferð er þó ekki allt hreinsað út. Sé þess þörf, er aðferðin við það sýnd hér á eftir (sjá Fjarlægja Tölvuorðabókina fullkomlega).

  1. Nota Add/Remove Programs í Control Panel (Start-hnappur, Settings, Control Panel) til að fjarlægja allt það sem úttektarforritið ræður við að fjarlægja.
  2. Hugsanlega mun úttektarforritið tilkynna að það geti ekki fjarlægt möppuna sem forritið er í. Það er þá vegna þess að ein eða fleiri skrár eru í möppunni, t.d. aukaorðabókin sem myndast þegar Tölvuorðabókin er ræst í fyrsta skipti, en úttektarforritið hefur hvorki leyfi né þekkingu til að eyða þeirri skrá. Einhverja hreinsun verður notandinn því að gera sjálfur. Það felst í því að ræsa forritið Windows Explorer, finna möppuna sem Tölvuorðabókin er í (yfirleitt C:\Program Files\Ordabok eða C:\Ordabok) og eyða öllu úr möppunni (þó ekki skránni Auka.dal ef þú hefur bætt einhverju í Tölvuorðabókina).

Þess má geta að þótt Tölvuorðabókin sé fjarlægð og sett inn aftur, dregst ekki meira af hinum 3 leyfum sem hver notandi hefur. Leyfin eyðast aðeins ef CD-númerið er skráð á mismunandi tölvum eða skráð aftur á tölvu þar sem Windows kerfið hefur hrunið.


Fjarlægja Tölvuorðabókina fullkomlega

  1. Notaðu Kostir-Taka Tölvuorðabókina út úr Word til að fjarlægja skipanir Tölvuorðabókarinnar úr Tools valmyndinni í Word.
  2. Nota Add/Remove Programs í Control Panel (Start-hnappur, Settings, Control Panel) til að fjarlægja allt það sem úttektarforritið ræður við að fjarlægja.
  3. Hugsanlega mun úttektarforritið tilkynna að það geti ekki fjarlægt möppuna sem forritið er í. Það er þá vegna þess að ein eða fleiri skrár eru í möppunni, t.d. aukaorðabókin sem myndast þegar Tölvuorðabókin er ræst í fyrsta skipti, en úttektarforritið hefur hvorki leyfi né þekkingu til að eyða þeirri skrá. Einhverja hreinsun verður notandinn því að gera sjálfur. Það felst í því að ræsa forritið Windows Explorer, finna möppuna sem Tölvuorðabókin er í (yfirleitt C:\Program Files\Ordabok eða C:\Ordabok) og eyða öllu úr möppunni (þó ekki skránni Auka.dal ef þú hefur bætt einhverju í Tölvuorðabókina).
  4. Eyða skránni Ordaalda.ini í Windows möppunni. Í þessari skrá eru tilvísanir á slóðir og sérstaklega mikilvægt að eyða þessari skrá ef ætlunin er að setja forritið upp á annan stað í tölvunni.
  5. Í möppunni sem Tölvuorðabókin var í eru hugsanlega enn einhverjar skrár, t.d. Auka.dal og Sleppa.skr. Sú fyrrnefnda hefur að geyma þau orð sem þú hefur bætt við og hin geymir orð sem þú hefur ákveðið að láta ávallt hlaupa yfir í skjalalestri. Þú getur eytt þessum skrám eða geymt þær.
  6. Ætlirðu þér að flytja forritið á annan stað, geturðu nú sett það upp á nýjan leik og valið aðra staðsetningu.

Þess má geta að þótt Tölvuorðabókin sé fjarlægð og sett inn aftur, dregst ekki meira af hinum 3 leyfum sem hver notandi hefur. Leyfin eyðast aðeins ef CD-númerið er skráð á mismunandi tölvum eða skráð aftur á tölvu þar sem Windows kerfið hefur hrunið.


Leyfisskráning

  1. Gefðu skipunina Hjálp-Leyfisskráning.
  2. Veldu hnappinn Internet (ef þú vilt gera skráningu í gegnum Internetið) eða Hringja (ef þú vilt gera skráninguna í gegnum þjónustuaðila).
  3. Ef þú hefur valið Hringja, hlauptu yfir að lið 6 hér að neðan.
  4. Ritaðu upplýsingar um þig eða þitt fyrirtæki í valmyndina sem birtist. Þessi skráning er ekki nauðsynleg en styrkir tengsl okkar við þig sem notanda og kaupanda. Þetta er líka góð leið til að tryggja sér hugbúnaðinn á uppfærsluverði í framtíðinni. Staðfestu skráninguna eða hættu við hana.
  5. Ritaðu CD-númerið sem er á pakkanum, inn í reitina í næstu valmynd. Þrýstu á staðfestingarhnappinn. Fáirðu til baka skilaboðin "Skráningin hefur heppnast..." er skráningunni þar með lokið.
  6. Ef þú hefur valið Hringja, mun birtast valmynd þar sem sýnt er það símanúmer sem þú átt að hringja í. Þú þarft að vera við tölvuna þegar þetta er gert. Þegar þú hefur náð sambandi við þjónustuaðila, mun sú manneskja sjá um að leiða þig í gegnum áframhaldið.


Skrá CD-númer í gegnum tölvupóst

  1. Settu forritið í gang og veldu Hjálp-Leyfisskráning.
  2. Veldu hnappinn Hringja.
  3. Ritaðu CD-númerið inn og þrýstu á hnappinn Áfram.
  4. Þá birtist á skjánum talnaruna. Sendu CD-númerið og þessa talnarunu og nafn og kennitölu (ef þú vilt fá framtíðar uppfærslur á betra verði) í tölvupósti með því að smella hér.
  5. EKKI LOKA GLUGGANUM fyrr en þú færð talnarunu senda á móti.
  6. Ritaðu talnarununa sem þú færð senda inn í neðri reitalínuna á skjánum.
  7. Þrýstu á hnappinn Skrá leyfi.


Hugsanlegar lausnir á vandamálum sem ekki leysast með öðrum lausnum

Hér eru nokkrar almennar lausnir sem geta dugað þegar allt annað þrýtur. Þær lausnir sem þú ættir að prófa fyrst eru efst.

  • Sækja endurbótaútgáfu af Tölvuorðabókinni.
  • Ræsa tölvuna á ný og prófa aftur.
  • Eyða skránni Ordaalda.ini sem er í Windows-möppunni (eða Winnt ef um NT Workstation er að ræða).
  • Eyða skránni Auka.dal sem er í möppunni þar sem orðabókin er. Athugaðu þó að þessi skrá getur haft að geyma verðmætar upplýsingar ef þú hefur bætt inn orðum eða orðskýringum frá eigin brjósti.
  • Taka forritið út og setja það inn á ný (sjá hér ofar).
  • Setja Windows-kerfið inn á ný. Athugaðu að ef um Windows 98 er að ræða, lagar ný uppsetning ýmis vandamál sem kunna að vera til staðar. Ekki þarf að setja öll forrit upp á ný, þar sem þessi uppsetning leggst einfaldlega yfir þá sem fyrir er. Uppsetning er gerð með því að ræsa Windows Explorer og keyra Setup.exe af geisladiskinum fyrir Windows-kerfið.
  • Í sumum tilfellum tengist vandamál við notkun Tölvuorðabókarinnar á einhvern hátt Office-kerfinu. Það er því stundum reynandi að taka Office út og setja inn á ný.

Breytt / updated: 02 nóvember 2001.