Gullfoss

| tölvuorðabókin |

Nóvember 2000
Komnar eru út tvær nýjar orðabækur innan Tölvuorðabókarinnar, þ.e. Frönsk-íslensk og Íslensk orðabók.

27. október 1999
Lesvélin í Tölvuorðabókinni hefur verið betrumbætt verulega. Þar ber hæst að hún staðnæmist nú mun sjaldnar við stór samsett orð, heldur les þau í orðhlutum. Einnig kemur sér vel að nú er hægt að hætta lestur í miðju skjali og hefja næst lesturinn frá og með þeim stað. Ef þú átt útgáfu 3.0 - 3.1 smelltu þá hér til að sækja þessa nýjustu útgáfu.

24. september 1999
Komið er á vef forritið Skráningaropnun, en það gerir kleift að hreinsa misheppnaðar skráningar sem orðið hafa þegar ritað hefur verið rangt CD-númer eða rangt leyfisnúmer í þrígang inn í Tölvuorðabókina við leyfisskráningu. Smelltu hér til að sækja þetta forrit.

17. september 1999
Útgáfu fransk-íslenskrar orðabókar innan Tölvuorðabókarinnar hefur verið frestað til fyrsta fjórðungs ársins 2000.
Var þetta einkum gert vegna þess að forgangsatriði þótti að betrumbæta villulestur íslenskra skjala í forritinu.

21. maí 1999
Tölvuorðabókin, útgáfa 3.0, er komin út. Þeir sem eiga Tölvuorðabókina eða Orðabók Aldamóta og hafa sent inn skráningarblað munu eiga kost á uppfærslu á góðu verði.
Tölvuorðabókin er fáanleg í einstaklingsútgáfu og netútgáfu. Mikil þróunarvinna liggur í þessari útgáfu, bæði hvað varðar hugbúnað og endurnýjuð ensk-íslensk og íslensk-ensk orðasöfn.
Útgáfa 3.0 var lengi í smíðum, eða allt frá því um 1995, enda eru miklar viðbætur í henni. Hún var prófuð mjög vel áður en hún fór í framleiðslu og stóð beta-prófun yfir frá september 1998 til mars 1999. Prófunin gafst afskaplega vel og barst fjöldi ábendinga um það sem betur mátti fara frá beta-prófurunum.
Í útgáfu 3.0 er ný afritunarvörn, sem kemur í veg fyrir ólöglega dreifingu hugbúnaðarins.

25. febrúar 1999
Nú er í undirbúningi útgáfa á fransk-íslenskri orðabók innan Tölvuorðabókarinnar og hefur verið ákveðið að hún komi út í haust. Orðasafnið sjálft er tilbúið og einungis eftir að setja það inn í forritið.

25. febrúar 1999
Íslensk-dönsk orðabók er í smíðum.


Breytt / updated: 02 nóvember 2001.