Yfirlit yfir nýjungar í
TölvuorðabókEftirfarandi
skjal sýnir hvaða nýjungar og breytingar hafa orðið í undanförnum
endurbótaútgáfum Tölvuorðabókarinnar.
TÖLVUORÐABÓKIN --- ÚTGÁFA 4.0
Endurbætur
=============================
Þessi upplýsingaskrá fjallar um endurbætur sem gerðar hafa verið á
Tölvuorðabókinni frá því útgáfa 4.0 kom út.
Útgáfa 4.2 (net- og einstaklings) -- 12. október 2002 -- 4.20.0000
------------------------------------------------------------------
- Nú er hægt að stilla, í skjalalestri, hvort leyfa eigi öll samsett orð. Stillingin
er gerð undir Kostir > Ýmsir kostir. Sjálfgefið er að leyfa öll samsett orð. Sé
stillingunni breytt mun lesturinn staðnæmast miklu oftar í skjalinu, en um leið
verður lesturinn miklu öruggari, því þegar samsett orð eru leyfð geta slæðst inn
villur eins og "eðlifræði".
- Lagfærð villa 5 þegar orðasöfn eru gerð nærlæg (netútgáfa).
Útgáfa 4.1b (net- og einstaklings) -- 2. október 2002 -- 4.10.0200
------------------------------------------------------------------
- Lagfærð villa í leyfisskráningu.
Útgáfa 4.1a (net- og einstaklings) -- 5. september 2002 -- 4.10.0100
--------------------------------------------------------------------
- Væri Large Fonts valið á tölvunni rúllaðist leitarglugginn upp og varð að
láréttri stiku og forritið fraus.
Útgáfa 4.1 (net- og einstaklings) -- 17. október 2001 -- 4.10.0000
-------------------------------------------------------------------
- Gagngerar endurbætur gerðar á þeim hluta villulestrarforritsins, sem sér um að
koma með tillögur að réttum orðum.
- Í netútgáfunni er nú hægt að afrita orðasöfn af netþjóninum yfir á útstöð
og nota Tölvuorðabókina án þess að vera tengdur innanhússnetinu, og kemur það
sér vel ef um fartölvu er að ræða.
- Í dansk-íslensku orðabókinni er nú hægt að skoða uppflettiorð sem eru aðeins
einn stafur, svo sem "a" eða "b".
- Forritið getur uppfært sig sjálft í gegnum Internetið með skipun undir valmyndinni
Nýtt.
- Stærð leitargluggans lagar sig sjálfkrafa að því letri sem notandi kann að velja
fyrir aðalvalmyndalínuna (þ.e. breytingar sem notandi gerir með Control Panel ->
Display -> Appearance).
- Forritið gat ekki ráðið við beygð orð í íslensk-enska og ensk-íslenska eftir
að Íslenska orðabókin hafði verið í notkun.
- Stærð leitargluggans lagar sig sjálfkrafa að því letri sem notandi kann að velja
fyrir aðalvalmyndalínuna (þ.e. breytingar sem notandi gerir með Control Panel ->
Display -> Appearance). Því kemur nú ekki lengur fyrir að orðasafnalistinn er
falinn.
- Forritið átti til að missa "fljótandi" stöðu sína (sem stillt er með
Kostir-Fljótandi gluggar) en það á nú að vera komið í lag.
Útgáfa 4.0a (net- og einstaklings) -- 29. nóvember 2000 -- 4.00.0100
--------------------------------------------------------------------
- Reiturinn í glugganum Skýring birtist ekki rétt eftir að forritið hefur beðið um
leyfisskráningu.
- Forritið setti sig ekki rétt upp á útstöðvar (netútgáfa).
|