Tölvuorðabókin - ný útgáfa
Þessi síða gegnir því hlutverki að svara nokkrum spurningum og vísa veginn til enn
frekari leiðbeininga.
Þegar notandi hefur fengið í hendurnar
nýja útgáfu af Tölvuorðabókinni er oftast raunin sú að komin er út ennþá nýrri
útgáfa, svokölluð endurbótaútgáfa, og má sækja hana af Internetinu. Ráðlagt er
að sækja þessa nýju útgáfu.
Sækja endurbætta útgáfu af Tölvuorðabókinni.
Einnig er til vandamálasíða
þar sem rakin eru öll algengustu vandamál og villuboð í forritinu.
Svo má nefna hjálparsíðuna
sem hefur tengla á ýmsar gagnlegar síður.
NOKKRAR MIKILVÆGAR ÁBENDINGAR
Uppsetning á netkerfi
Þeir sem keypt hafa netútgáfuna ættu að kíkja hingað til að sjá fullkomnar
leiðbeiningar um uppsetningu inn á netþjón.
Fjarlægja og setja inn aftur
Uppsetning Tölvuorðabókarinnar getur misheppnast svo rækilega að ekki er um
annað að ræða en að fjarlægja forritið algerlega og setja það upp aftur. Hér er að finna aðferðina
til að fjarlægja forritið algerlega.
Leyfisskráning
Hér eru fullkomnar leiðbeiningar um hvernig á að gera leyfisskráningu.
Hvernig virka þessi þrjú
leyfi?
Tölvuorðabókina hefur innbyggt kerfi til að varna því að hún sé notuð
af þeim sem ekki hafa keypt hana.
Kerfið virkar þannig að hægt er að setja hvert eintak Tölvuorðabókarinnar inn á
ótakmarkaðan fjölda tölva eða ótakmarkað oft upp á sömu tölvu.
En að 15 dögum liðnum þarf að skrá forritið. Í því felst að senda CD-númerið
sem fylgir hverju eintaki, inn í gagnaskrá sem er á vegum Alnets á Internetinu, með
sérstakri aðgerð í forritinu (Hjálp-Leyfisskráning). Þegar CD-númerið er sent inn
er skráð í gagnaskrána að eitt leyfi hafi verið notað. CD-númerið er líka
skráð inn á tölvu notandans. Sé skráning gerð aftur á sömu tölvu, og
CD-númerið er ennþá til staðar á tölvu notandans, dregst ekki meira
af hinum þremur leyfum, þar sem forritið sér að Tölvuorðabókin hefur þegar verið
skráð á þessari tölvu. Hrynji Windows-kerfið aftur á móti á þessari tölvu, eða
þá að harði diskurinn er formataður, dregst eitt leyfi til viðbótar þegar
skráning CD-númersins er gerð aftur á þessari tölvu.
Skjalalestur
Ein af nýjungunum í Tölvuorðabókinni, útgáfu 3.0, er aðgerð til að lesa
íslensk skjöl í Word 97 og nýrra. Íslenskulesturinn er bundinn við það orðasafn
sem er í íslensk-enska orðasafninu, þannig að hann getur strandað á ýmsum
samsettum orðum sem ekki eru í safninu.
Nú er reyndar hægt að fá endurbætta útgáfu (sjá efst á þessari síðu) sem
leysir þetta vandamál að miklu leyti.
Skrá CD-númer í gegnum
tölvupóst
Áttu í vandræðum með að skrá CD-númerið í gegnum Internet-gátt
Tölvuorðabókarinnar eða hefurðu ekki tök á að hringja inn skráninguna? Þú getur gert skráninguna í
gegnum tölvupóst. Sjá hér.
Breytt /
updated: 29. nóvember 2000. |