Gullfoss

Alnet

| tölvuorðabókin | um alnet | heim |

Tölvuorðabókin - útgáfa 3.0


Útgáfu 3.0 kom út í byrjun maí 1999.

Þúsundir notenda munu taka ákvörðun um uppfærslu yfir í útgáfu 3.0 á árinu 1999. Þessi útgáfa hefur verið lengi í bígerð og vinnslu, enda mikil framför í henni falin.

Hér er yfirlit yfir helstu breytingar, svo að fólk geti glöggvað sig á kostunum við uppfærslu.

  • Þúsundir viðbóta og lagfæringa á ensk-íslensku og íslensk-ensku orðasöfnunum
    Sett hafa verið inn ný uppflettiorð, breytingar og lagfæringar gerðar á skýringum og fleiri þýðingum bætt við mörg orð. Einnig má nefna að fjölmörgum algengum orðasamböndum og orðtökum hefur verið bætt við. Nema þessar breytingar um 10.000 á íslensk-enska orðasafninu.
  • Lestur á íslenskum skjölum
    Tölvuorðabókin getur bæði lesið íslensk og ensk skjöl innan Word 97 og nýrri útgáfna.
  • Tengsl við önnur forrit
    Hægt er að kalla á orðabókina innan úr Word 97 og nýrra.
  • Samhæfing við Windows 95 og NT 4.0
    Tölvuorðabókin hefur nú í fyrsta sinn verið samhæfð þessum umhverfum, en það þýðir meðal annars að hún vinnur nú á 32ja bita formi, sem auðveldar henni samskipti við önnur forrit (t.d. þegar hnappurinn Lesa er notaður til að lesa stök orð af skjá annarra forrita). Einnig táknar þetta að Tölvuorðabókin skráir nú stoðskrár sínar (DLL skrár o.þ.h.) inn í Windows Registry, og býður upp á að hægt sé að taka forritið út með snyrtilegum hætti (Uninstall). Er það gert með Add/Remove Programs í Control Panel. Auk þessa getur Tölvuorðabókin notfært sér aðra kosti, svo sem eins og aðgang að stærri minnissvæðum fyrir breytur og stjórntæki. Sem dæmi má nefna að stærð glósuskjala er ekki lengur takmörkuð við 64KB.
  • Orðasambandsuppfletting
    Þegar notandi lætur orðabókina fletta upp orðasambandi sem samanstendur af nokkrum orðum, reynir orðabókin að finna það í skýringum sínum, og afmarkar það þar fyrir notandann, sem flýtir geysilega fyrir, því notandinn þarf hvorki að leita undir hvaða orði orðasambandið sé sýnt, né þarf hann að leita innan skýringarinnar sjálfrar. Þetta virkar best þegar um algengt orðasamband er að ræða, svo sem eins og að skara fram úr. Ekki skiptir máli í hvaða mynd orðasambandið kemur hjá notandanum og á orðabókin að þekkja það hvort sem það er í myndinni skara fram úr, skaraði fram úr eða sköruðu fram úr.
  • Betri glósutækni
    Notandi getur látið glósurnar sínar stafrófsraðast eftir uppflettiorðunum. Einnig má velja glósuröðun, sem er sú röð sem glósað var í.
  • Internet-tenging
    Innan forritsins er hægt að kalla upp sérstaka vefsíðu Tölvuorðabókarinnar og birtist hún í þeim vefskoðara sem sjálfgildur er á tölvu notandans (t.d. Netscape eða Internet Explorer). Á vefsíðunni verður boðið upp á nokkra valkosti sem tengjast orðabókinni, t.d.:
    1) Notandi getur skoðað tilkynningar um nýjungar tengdar orðabókinni.
    2) Notandi getur flett upp í ferskum hjálparskjölum á Internetinu.
    3) Fljótlega verður boðið upp á uppflettingu í orðasöfnum sem liggja á Internetinu. Kemur þetta í staðinn fyrir að setja fjölda sérfræðiorða í aðalorðasöfnin.
    4) Hægt verður að sækja nýjar útgáfur af Tölvuorðabókinni í gegnum Internetið.
  • Ný tegund af læsingu
    Tölvuorðabókin útgáfa 3.0 er með sérhönnuðu læsingarkerfi, sem gerir að verkum að hver notandi getur sett forritið upp á þrjár tölvur eða þrisvar á sömu tölvu (ef hún skyldi hrynja).
  • Villuhreinsun
    Ýmsar villur og óþægindi sem notendur hafa orðið fyrir, munu nú heyra sögunni til, enda hefur verið sett á oddinn að ná fram meiri gæðum á þessu sviði. Það er að vísu seint hægt að útiloka allar villur en miklu máli skiptir að í nýju útgáfunni er betra villuboðakerfi en áður. Til dæmis er útskýring á villu sýnd á ensku ef hún er ekki til á íslensku. Einnig er boðið upp á hnapp sem gefur beinan aðgang að villusíðu á vef Tölvuorðabókarinnar á Internetinu, þar sem oft má fá lausn á viðkomandi villu.

Breytt / updated: 03 febrúar 2000