Gullfoss

| tölvuorðabókin |

Algengar villur í Tölvuorðabókinni

Í þessu skjali er yfirlit yfir þær villur sem algengastar hafa verið í Tölvuorðabókinni í gegnum árin. Notandi getur leitað hingað til að athuga hvernig hann eigi að bregðast við villu, þ.e. hvort hann eigi að reyna að bjarga málunum sjálfur, sækja nýrri útgáfu af vefsíðu eða leita aðstoðar hjá Alneti, netfang alnet@alnet.is.

EF ÞÚ FÆRÐ EKKI LAUSN HÉR
Fáirðu ekki lausn á þínu vandamáli hér, geturðu reynt þessa síðu, sem hefur ítarlega ferla til að ráðast gegn erfiðum vandamálum. Einnig má senda tölvupóst til alnet@alnet.is með lýsingu á vandamálinu og á hvaða andartaki í notkun forritsins það kemur upp.

NÝJAR OG ENDURBÆTTAR ÚTGÁFUR
Í mörgum tilfellum er ekki hægt að fá lausn á villu með öðru en því að sækja endurbætta útgáfu af viðkomandi forriti í gegnum Internetið:

Sækja endurbætta útgáfu af Tölvuorðabókinni.

EFNI Í ÞESSU SKJALI
Þessu skjali er skipt upp í 3 kafla, þ.e. Ýmis vandamál, Ýmis boð og Villur eftir númerum. Fyrri kaflarnir tveir fjalla um vandamál sem hafa ekki númer eða koma fyrir í öðrum forritum (svo sem Windows eða Word).

ÝMIS VANDAMÁL

Vandamál við uppsetningu Tölvuorðabókarinnar

Útgáfur Tölvuorðabókarinnar upp að og með 6.0 ganga snurðulaust upp að og með Windows XP. Þegar kemur að Windows Vista þarf oftast að gera þessa breytingu til þess að geta keyrt Íslenska orðabók:

1. Start-hnappur.
2. Control Panel.
3. Control Panel Home.
4. Add or remove user accounts.
5. Go to the main User Accounts page.
6. Turn User Account Control on or off.
7. Taka hakið úr reitnum Use User Account Control (UAC) to help protect your computer.
8. Smella á OK og velja Restart Now hnappinn til að endurræsa tölvuna.

Sé notuð Tölvuorðabókin 2008 eða nýrri þarf ekki að gera þessa breytingu. Útgáfur Tölvuorðabókarinnar upp að og með 6.0 ganga ekki í Windows 7 en það gera hins vegar nýrri útgáfur, þ.e. Tölvuorðabókin 2008 eða nýrri.

Tölvuorðabókin fer í gang en sést aðeins sem hnappur í Taskbar
Skýring: Sennilega er orðabókin komin út fyrir skjáinn. Hugsanlega stafar það af því að notandi hefur skipt um skjáupplausn.
Lausn: Byrja á því að loka Tölvuorðabókinni, ef hún er í gangi. Það má hægrismella yfir hnappinum í Taskbar stikunni og velja Close. Eyða svo skránni Ordaalda.ini í Windows-möppunni. Sú skrá hefur að geyma ýmsar stillingar fyrir Tölvuorðabókina, þar á meðal gluggastillingar. Skráin er mynduð sjálfkrafa næst þegar forritið er ræst. Best er að eyða þessari skrá með því að smella á Start hnappinn, velja Find, Files or Folders, rita ordaalda.ini í Named reitinn og smella á Find now hnappinn. Eyða svo skránni úr listanum sem birtist neðantil í glugganum.

--- Gerist í Word
Tölvuorðabókin setur sig ekki inn í Tools-valmyndina í Word
Skýring 1:
Þegar Tölvuorðabókin er sett inn í tölvu, athugar hún hvort Word 97 eða nýrra sé fyrir hendi. Sé svo, spyr uppsetningarforritið hvort Tölvuorðabókin eigi að setja sig inn í Tools-valmyndina í Word. Ef notandi játar því getur hann opnað Tölvuorðabókina og ræst lestur innan Word með viðeigandi skipunum í Tools-valmyndinni. Komið hafa upp örfá tilvik þar sem Tölvuorðabókin birtist ekki í Tools-valmyndinni. Ekki hefur fundist nein skýring á því enn. Hugsanlega er Word eða Office ekki rétt uppsett á viðkomandi tölvu.
Lausn 1: Fyrst má reyna að opna Tölvuorðabókina og gefa skipunina Kostir-Setja Tölvuorðabókina inn í Word. Hafi það ekkert að segja, má opna Tools-valmyndina í Word, velja Templates and Add-ins. Sé skráin TO-tengsl.dot (eða TOtengsl.dot) sjáanleg í listanum, má merkja við hana. Sé hún ekki sjáanleg má nota hnappinn Add til að fletta upp á möppunni C:\Program Files\Microsoft Office\Office\Startup og velja þar skrána TO-tengsl.dot (eða TOtengsl.dot). Virki þetta ekki, má reyna að setja Word eða Office upp á nýtt á þessari tölvu.
Skýring 2: Ef þú ert að setja inn Tölvuorðabókina 2008 eða nýrri, þá setur hún sig ekki inn í Tools-valmyndina í Word, og er það eins og það á að vera.
Lausn 2: Ef þú ert að velta fyrir þér leiðréttingaforritinu, þá hefur forritið Málfar nú tekið við því hlutverki, sjá um það hér

--- Gerist í Word
The macro cannot be found or has been disabled because of your Macro security settings
Skýring:
Þessi skilaboð geta komið ef skráin TOtengsl.dot er ekki fyrir hendi eða hefur verið gerð óvirk í Word. Skráin er frá Tölvuorðabókinni.
Lausn: Fyrst má reyna að opna Tölvuorðabókina og gefa skipunina Kostir-Setja Tölvuorðabókina inn í Word. Hafi það ekkert að segja, má opna Tools-valmyndina í Word, velja Templates and Add-ins. Sé skráin TO-tengsl.dot (eða TOtengsl.dot) sjáanleg í listanum, má haka við hana. Sé hún ekki sjáanleg má nota hnappinn Add til að fletta upp á möppunni C:\Program Files\Microsoft Office\Office\Startup og velja þar skrána TO-tengsl.dot (eða TOtengsl.dot).

--- Gerist í uppsetningu
Tölvuorðabókin segist ekki finna skrána TO-tengsl.dot í uppsetningu
Skýring:
Stýrikerfið eða geisladrifið á viðkomandi tölvu ræður ekki við löng skráanöfn. Þetta er t.d. ekki óalgengt á Novell netkerfum, en getur líka komið fyrir á venjulegum einmenningstölvum.
Lausn: Setja Long filenames stillingu á kerfið eða fá nýjan geisladisk hjá útgefanda, þar sem TO-tengsl.dot er með stuttu skráarnafni.

--- Gerist í Tölvuorðabókinni undir Windows 2000 og Windows 98SE
Skýringaglugginn sýnir ekki skýringuna á orði sem leitað er að
Skýring:
Ekki er vitað hvað veldur þessu.
Lausn: Sækja endurbætta útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

--- Gerist í Word
Tölvuorðabókin birtist ekki þegar reynt er að ræsa hana úr Word
Skýring:
Komi engin skilaboð er sennilegt að Word finni ekki TOtengsl.dot, jafnvel þótt skráin sé til staðar í C:\Program Files\Microsoft Office\Office\Startup.
Lausn: Það má prófa að færa skrána TOtengsl.dot í möppuna sem tilgreind er fyrir Startup í Tools-Options-File Locations í Word.

--- Gerist í Word
Ekki er hægt að ræsa lestur úr Word. Skipunin er til staðar í valmyndinni Tools en ekkert gerist
Skýring:
Komi engin skilaboð er sennilegt að Word finni ekki TOtengsl.dot, jafnvel þótt skráin sé til staðar í C:\Program Files\Microsoft Office\Office\Startup.
Lausn: Það má prófa að færa skrána TOtengsl.dot í möppuna sem tilgreind er fyrir Startup í Tools-Options-File Locations í Word.
Það er hugsanlegt að þetta gerist í netútgáfu, þegar reynt er að ræsa lestur á þeirri tölvu sem notuð var til að setja inn Tölvuorðabókina á netþjóninn. Aðrar útstöðvar geta sett lesturinn í gang, en ekki þessi. Ástæðan er sú að eftir er að setja orðabókina upp á þessa tölvu.
Lausn: Setja Tölvuorðabókina upp á þessa tölvu, með því að ræsa Setup í möppunni þar sem orðabókin er á netþjóninum..

--- Gerist í Word
Þegar lestur er settur í gang í Word virðist lesvélin lesa einhver orð sem eru alls ekki í því skjali sem er á skjánum
Skýring:
Skýringin á þessu er sú að tvö eintök af Word eru opin, og þú ert að láta Tölvuorðabókina lesa texta í seinna eintakinu. En lesvélin reynir sjálfkrafa að lesa í því eintaki af Word sem var opnað fyrst.
Lausn: Notaðu það eintak af Word sem þú opnaðir fyrr, til að sækja skjalið sem þú vilt lesa yfir með Tölvuorðabókinni og biddu svo aftur um lestur.

--- Gerist í Word
Þegar notaður er hnappurinn Leiðrétta, fer leiðrétta orðið framan við orðið sem hafði að geyma villuna
Skýring:
Skýringin á þessu er sú að valkosturinn Typing replaces selection er ekki merktur í Options valmyndinni í Word.
Lausn: Í Word skaltu fara í Tool-Options, velja Edit flipann og merkja við valkostinn Typing replaces selection. Einnig má sækja útgáfu 3.4 eða nýrri (sjá efst í þessu skjali).

--- Gerist í Word
Glugga-Púkinn margfaldar skipanalínur sínar í Tools valmyndinni í Word þegar Tölvuorðabókin er sett inn
Skýring:
Glugga-Púkinn virðist fjölga sér í Tools valmyndinni í Word þegar önnur .dot skrá er í Startup möppunni undir Word. Þetta á ekki bara við þegar Tölvuorðabókin er sett upp heldur yfirleitt þegar .dot skrá er sett inn í Startup möppuna til að auka virkni Word með einhverjum hætti. Ástæðan er sú að Glugga-Púkinn athugar ekki hvort hann sé þegar kominn í Tools valmyndina, heldur setur sig aftur inn þegar Word endurskipuleggur Normal.dot skrána með tilliti til .dot skráa í Startup möppunni.
Lausn: Til að koma í veg fyrir að skipanalínur Glugga-Púkans síendurtaki sig í Tools valmyndinni, þarf að loka Word og eyða skránni Normal.dot í C:\Program Files\Microsoft Office\Templates.

Um skrána Ordaalda.ini
Skráin Ordaalda.ini er mynduð sjálfkrafa þegar Tölvuorðabókin er sett fyrst í gang á tölvunni. Þessi skrá hefur að geyma ýmsar stillingar og slóðir. Sem dæmi má nefna að ef þú breytir tilhögun orðabókarglugganna á skjánum, er sú tilhögun vistuð í þessa skrá. Við næstu ræsingu les Tölvuorðabókin allar slíkar stillingar og raðar gluggunum á skjáinn samkvæmt vali notandans.

Skráin geymir líka slóðir á gagnaskrár, glósuskjöl o.fl. Ef notandi færir Tölvuorðabókina frá einni möppu til annarrar mun forritið ekki finna ýmsar skrár á þeim slóðum sem fram koma í Ordaalda.ini. Í mörgum tilfellum getur forritið leyst þetta mál upp á eigin spýtur en ekki alltaf. Þá er lausnin annað hvort sú að opna skrána (með því að tvísmella yfir henni í Windows möppunni) og lagfæra slóðir í höndunum, eða hreinlega eyða skránni og láta hana myndast upp á nýtt í næstu ræsingu Tölvuorðabókarinnar.

ÝMIS BOÐ

--- Gerist í uppsetningu
Wrong version of run-time DLL
Skýring:
Skráin MSVBVM50.DLL er í möppunni Windows, en ekki er ætlast til þess. Einhver annar hugbúnaður hefur líkast til sett þessa skrá á þennan stað.
Lausn: Eyða skránni MSVBVM50.DLL úr möppunni Windows. Best að gera þetta með því að velja Start hnappinn, velja Search eða Find, For Files or Folders, rita MSVBVM50.DLL í efsta reitinn og setja leit af stað. Eyða þeirri skrá sem er í Windows möppunni. Reyna svo uppsetningu forritsins á ný.
Skráin MSVBVM50.DLL er í möppunni Windows, en ekki er ætlast til þess. Einhver annar hugbúnaður hefur líkast til sett þessa skrá á þennan stað.
Lausn: Eyða skránni MSVBVM50.DLL úr möppunni Windows. Best að gera þetta með því að velja Start hnappinn, velja Search eða Find, For Files or Folders, rita MSVBVM50.DLL í efsta reitinn og setja leit af stað. Eyða þeirri skrá sem er í Windows möppunni. Reyna svo uppsetningu forritsins á ný.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni (uppsetningu)
Type mismatch
Skýring:
Ekki hefur fengist skýring á þessari villu.
Lausn: Nota nýja útgáfu af uppsetningarforritinu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni (uppsetningu)
Ónothæf lína í upplýsingaskránni fyrir uppsetningarforritið
Skýring:
Þessi villa getur t.d. komið upp ef Tölvuorðabókin er sett upp á Novell Netware netkerfi í gegnum NT Workstation útstöð. Ástæðan er galli í uppsetningarforritinu. Þetta kemur þó aðeins upp ef mappan sem setja á inn í, er til fyrir.
Lausn: Setja upp í gegnum Windows 98 eða Windows 95 útstöð, eða sækja nýrri útgáfu af uppsetningarforritinu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni (uppsetningu)
Runtime error 326. Resource with identifier 306 not found
Skýring:
Kemur í uppsetningarforriti fyrir útgáfu 3.0 ef valið er að setja forritið í rótarmöppu (t.d. C:\ eða F:\ eða eitthvað slíkt).
Lausn: Setja Tölvuorðabókina í einhverja möppu undir rótarmöppunni, ekki í rótarmöppuna sjálfa. Einnig má sækja nýja útgáfu af forritinu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni (ræsingu)
Komin er uppfærsla á forritið. Viltu sækja hana?
Skýring:
Í netútgáfunni geta þessi skilaboð komið í hvert sinn sem Tölvuorðabókin er ræst á útstöð. Skýringin getur verið sú að uppsetningin á netþjóninum er gölluð, þ.e. að skráin Uppset.dat er ekki fyrir hendi, eða að í hana vantar mikilvægar upplýsingar.
Lausn: Kerfisstjóri ætti að nota Control-Panel Add/Remove til að taka Tölvuorðabókina út af netþjóninum og setja hugbúnaðinn svo inn á nýjan leik af geisladiskinum. Setja svo endurbótaútgáfu inn þar á eftir. Þetta hefur verið lagað í útgáfu 3.0d og nýrri (sjá efst í þessu skjali).
Skýring 2: Þetta getur einnig stafað af því að forritið er ræst með flýtivísi (shortcut) sem vísar á möppu Tölvuorðabókarinnar á netþjóninum.
Lausn 2: Breyta tilvísuninni í flýtivísinum og láta hana vísa á möppu Tölvuorðabókarinnar á útstöðinni sjálfri (t.d. C:\Program Files\Ordabok). En auðvitað á líka alltaf að vera hægt að ræsa Tölvuorðabókina með því að fara í Start-hnappinn velja Programs og velja svo Tölvuorðabókina. Og í útgáfu 3.1 og nýrri (sjá efst í þessu skjali) hefur þessari vinnslu verið breytt þannig að það skiptir ekki máli hvert flýtivísirinn vísar.

--- Birtist í Word
Finn enga orðabók. Þú getur tilgreint staðsetningu í næstu valmynd
Skýring:
Ef þessi boð koma þegar reynt er að setja í gang Íslenskulestur í Tools valmyndinni í Word, og aðeins Dönsk-íslensk orðabók er fyrir hendi, er það vegna þess að sú orðabók nægir ekki til Íslenskulesturs.
Lausn: Fyrir Íslenskulestur þarf Ensk-íslensku / Íslensk-ensku orðabókina.

--- Birtist í Word
Forritið þarf að vita hvar gagnaskrár fyrir orðabókina eru geymdar. Þú þarft að tilgreina drif og möppu á netþjóni (server) í næstu mynd
Skýring:
Þetta stafar af villu í lestrarforritinu og kemur upp ef Tölvuorðabókin hefur verið nýsett inn á tölvuna og er í gangi þegar lestur er ræstur úr Word. Getur einnig komið almennt ef Tölvuorðabókin er í gangi og notuð er skipunin Skrá-Eyða sleppaskrá og síðan ræstur lestur í Word.
Lausn: Slökkva á Tölvuorðabókinni og ræsa lestur á ný. Einnig má sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Villa kom upp þegar reynt var að fá leyfi fyrir þessu orðasafni
Skýring:
Verið er að opna Tölvuorðabókina eða velja orðasafn og skráin Geymsla.skr er með read-only stillingu.
Lausn: Taka read-only stillinguna af skránni Geymsla.skr. Skráin er í möppu Tölvuorðabókarinnar á netþjóninum.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Get ekki opnað <orðabók>. Reyni að taka aðra í notkun
Skýring:
Ein hugsanleg skýring er sú að ekki hafi reynst mögulegt að mynda röðunarskrár í uppsetningu forritsins.
Lausn: Ræsa Windows Explorer og finna möppuna Program Files\Common Files\Microsoft Shared\Dao. Í þeirri möppu er skráin Dao350.dll. Gefa henni nýtt nafn (t.d. með því að fjarlægja síðasta stafinn í 3ja stafa eftirnafninu). Breyta má nafni með því að smella á skrána og ýta svo á lykilinn F2. Þegar nafninu hefur verið breytt má ýta á Enter til að staðfesta. Að þessu loknu skal Tölvuorðabókin fjarlægð af tölvunni og svo sett inn á tölvuna á ný.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Vinsamlega afmarkaðu það orð sem þú vilt láta lesa, t.d. með tvísmellingu yfir orðinu
Skýring:
Þú ert að nota hnappinn Lesa til að fletta upp einhverju orði sem þú hefur afmarkað t.d. á skjá Internet Explorer eða Netscape Navigator, en Tölvuorðabókin nær ekki taki á orðinu.
Lausn: Prófaðu að loka og ræsa viðkomandi forrit aftur, og reyna svo að nota hnappinn á ný.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Skráin Version.dat er ekki lengur tiltæk

Skýring:
Útgáfur 3.0a og 3.0b (netútgáfur) vænta þess að skrá þessi sé á netþjóninum.
Lausn: Kerfisstjóri þarf að keyra inn disklinginn með endurbótunum sem fylgir Tölvuorðabókinni, útgáfu 3.0, netútgáfu. Einnig má sækja nýjustu endurbótaútgáfu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Windows
Illegal operation
Skýring:
Word gefur stundum þetta villuboð þegar Tölvuorðabókin er að lesa skjal. Þetta hefur verið lagfært í útgáfu 2.5a af Tölvuorðabókinni.
Lausn: Sækja útgáfu 2.5a eða nýrri (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Búið er að gera 3 tilraunir til að skrá CD-númerið. Fleiri tilraunir eru ekki leyfðar
Skýring:
Búið er að reyna þrisvar sinnum að skrá rétt CD-númer en það virðist ekki hafa verið rétt ritað.
Lausn: Sækja forritið Skráningaropnun til að hreinsa misheppnuðu skráningarnar og geta gert fleiri tilraunir.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Aukaorðabók er ekki opin til breytinga á þessu kerfi
Skýring:
Þú ert að nota netútgáfu Tölvuorðabókarinnar og hugbúnaðurinn hefur verið þannig stilltur að ekki er hægt að bæta í aukaorðabókina (Auka.dal). Þú getur t.d. rekist á þessi boð þegar þú ert að kenna forritinu orð í yfirlestri í Word. Hugsanlega hefur kerfisstjóri gert þessa stillingu.
Lausn: Kerfisstjóri getur breytt stillingunni með því að fara í Kostir-Ýmsir kostir, velja hnappinn Netkostir og breyta í þeirri mynd sem þá birtist. Einnig má breyta skránni Ordanet.ini í möppu Tölvuorðabókarinnar á netþjóninum. Línan Ritaíaukaorðasafn getur ýmist verið stillt á -1 eða 0 eftir því hvort eigi að leyfa eða bæta í aukaorðabókina eða ekki.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Númerið er ekki rétt. Vinsamlega lagfærðu númerið og prófaðu aftur. Þú átt <fjöldi> tilraunir eftir.
Skýring:
Sé númerið örugglega rétt ritað, getur ástæðan verið sú að fyrst hafi verið valið að gera leyfisskráningu í gegnum Internet-gátt Tölvuorðabókarinnar, en síðan valið að Hringja.
Lausn: Sækja nýja útgáfu af forritinu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Tókst ekki að taka afrit af gagnaskránni ( gagnaskrá ) og því er ekki hægt að endurnýja gagnauppbyggingu til samræmis við nýju útgáfuna.
Skýring:
Þetta villuboð getur komið þegar skipt er um orðasafn, eftir að Dönsk-íslensk orðabók (2.5 eða nýrri) hefur verið sett þar sem fyrir er Ensk-íslensk-ensk orðabók eldri en 2.5. Sennilega er önnur gagnaskráin fyrir eldri orðabókina ófullnægjandi.
Lausn: Taka Dönsk-íslensku orðabókina út af kerfinu með Add/Remove Programs í Control Panel. Setja eldri orðabókina inn á ný. Setja svo Dönsk-íslensku inn aftur að þessu loknu.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Tókst ekki að gera nauðsynlega endurnýjun á gagnauppbyggingu eldri orðabókarskráa. Vinsamlega hafðu samband við Alnet (alnet@alnet.is). Loka nú Tölvuorðabókinni.
Skýring:
Hugsanlega hefur uppsetning misheppnast.
Lausn: Sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali). Dugi það ekki, má reyna að setja forritið upp á nýjan leik.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Samband náðist ekki
Skýring:
Þetta villuboð getur komið þegar reynt er að gera Leyfisskráningu eða Notandaskráningu með Internet-hnappinum.
Lausn: Reyna má að setja Internet-sambandið á áður en reynt er að gera ofangreindar aðgerðir. Til dæmis má setja Internet-samband á með því að ræsa vefskoðarann (Internet Explorer eða Netscape Navigator).

--- Birtist í Word
Finn ekki Tölvuorðabókina. Ef til vill er röng tilvísun í skránni Ordaalda.ini í Windows möppunni. Þú getur opnað þessa skrá og lagfært línuna Dir
Skýring: Verið er að reyna að ræsa Tölvuorðabókina úr Tools valmyndinni í Word. Sennilega hefur Tölvuorðabókin verið fjarlægð af tölvunni eða flutt á milli staða.
Lausn: Hafi Tölvuorðabókin verið fjarlægð þarf að setja hana inn á ný. Hafi hún verið flutt á milli staða þarf að lagfæra tilvísun í skránni Ordaalda.ini. Sú skrá er í Windows-möppunni á tölvunni þinni. Til að finna hana má opna forritið Find-Files or Folders undir Start-hnappinum og rita "ordaalda.ini" í efsta reitinn. Þegar skráin hefur fundist má tvísmella yfir nafni hennar til að opna hana. Ef Windows veit ekki með hvaða forriti á að opna skrána skaltu velja Notepad. Aftan við samasemmerkið (=) í línunni Dir í þessari skrá er vísað á einhverja möppu. Þú þarft að breyta þeirri tilvísun. Vistaðu svo skrána og prófaðu aftur að ræsa Tölvuorðabókinan úr Word eins og þú ætlaðir þér.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Cannot find the ENIS.HLP file. Do you want to try to find this file yourself?
Skýring:
Gerist þegar reynt er að opna hjálparkerfið í Tölvuorðabókinni. Stafar af galla í forritinu.
Lausn: Sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Get ekki lesið skjal. Orðasafn er of gamalt.
Skýring:
Þetta boð birtist ef verið er að reyna að hefja lestur með gömlu íslensk-ensku orðasafni (þ.e. eldra en útgáfa 3.0.
Lausn: Engin lausn er á þessu önnur en sú að kaupa Ensk-íslensku og Íslensk-ensku Tölvuorðabókina, útgáfu 3.0 eða nýrri.

--- Birtist í Tölvuorðabókinni
Ekki hægt að lesa í Word ef ekkert skjal er opið.
Skýring:
Skýringin á þessu er sennilega sú að tvö eintök af Word eru opin, og þú ert að reyna að fá lestur á því eintaki sem þú opnaðir síðar. Hins vegar er sennilega ekkert skjal opið í því eintaki sem var opnað fyrst. Lesvélin reynir sjálfkrafa að lesa í því eintaki af Word sem var opnað fyrst.
Lausn: Notaðu það eintak af Word sem þú opnaðir fyrr, til að sækja skjalið sem þú vilt lesa yfir með Tölvuorðabókinni og biddu svo aftur um lestur.

VILLUR  EFTIR  NÚMERUM

Það skal tekið fram að þau villunúmer sem hér eru birt, ásamt skýringum á þeim, gilda ekki fyrir allan hugbúnað, heldur fyrst og fremst fyrir hugbúnað sem gerður er með Visual Basic, eins og Tölvuorðabókin.

Villa 5
Villuboð á ensku:
Illegal function call.
Skýring: Forritið er að vinna með einhverja aðgerð án þess að gera ráð fyrir að ákveðið gildi kunni að vanta eða sé á einhvern hátt öðruvísi en venjulega.
Lausn: Fá nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).
Ath.: Villa þessi getur komið fram þegar reynt er að nota Tölvuorðabókina (útgáfu 2.0 til 2.11b) til að lesa skjöl í Word 95 og upp úr. Ástæðan er sú að Tölvuorðabókin getur ekki lesið skjöl í nýjustu Word-útgáfunum, fyrr en í útgáfu 3.0.
Ath.: Villa kemur fram í Tölvuorðabókinni þegar hnappurinn Lesa er notaður til að lesa orð úr öðru skjali og annar hvor glugganna Skýring eða Listi er ekki opinn.
Lausn: Hafa gluggana Skýring og Listi opinn þegar hnappurinn Lesa er notaður. Fá nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 6
Villuboð á ensku:
Overflow.
Skýring: Yfirfylling. Í Tölvuorðabókinni, útgáfu 3.0, getur þessi villa komið á NT Workstation tölvu ef Tölvuorðabókin er í gangi og reynt er að ræsa hana á ný.
Lausn: Endurræsa tölvuna. Sækja svo endurbætta útgáfu af hugbúnaðinum (sjá efst í þessu skjali).

Villa 7
Villuboð á ensku:
Out of memory.
Skýring: Skortir vinnsluminni. Með þessu er ekki átt við að tölvuna skorti vinnsluminni, heldur að það vinnsluminni sem hugbúnaðurinn hefur til umráða sé uppurið. Í raun er ekki um villu í hugbúnaðinum að ræða, heldur boð um að hugbúnaðinum sé um megn að ráða fram úr verkefninu.
Lausn: Við þessu er oftast ekkert að gera, og reyndar sýnir þetta gjarnan að notandi hafi ekki farið rétt að einhverju, t.d. gefið hugbúnaðinum of stóran upplýsingapakka til að vinna með.
Skýring 2: Hugsanlegt er að forritið vanti einhverjar af þeim .DLL og .OCX skrám sem fylgja því. Þessar skrár eiga að vera í Windows\System.
Lausn 2: Athuga hvort allar þær .DLL og .OCX skrár sem eiga að fylgja forritinu séu inni í Windows\System eða Winnt\System32.

Villa 9
Villuboð á ensku:
Subscript out of range.
Skýring: Innri vinnsluskekkja, sem yfirleitt má rekja til forritunarmistaka.
Lausn: Við þessari villu getur notandi oftast ekkert gert, og ætti hann því að athuga hvort hægt sé að fá nýrri útgáfu (sjá efst í þessu skjali) eða hafa samband við Alnet.
Þess má geta að í útgáfu 3.4a getur þessi villa komið upp við vissar aðstæður, en það má laga með því að sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 11
Villuboð á ensku:
Division by zero.
Skýring: Innri vinnsluskekkja, sem yfirleitt má rekja til forritunarmistaka.
Lausn: Notandi getur náð í nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali) og er hugsanlegt að þar sé búið að útiloka villuna.

Villa 13
Villuboð á ensku:
Type mismatch.
Skýring: Innri vinnsluskekkja, sem yfirleitt má rekja til forritunarmistaka.
Lausn: Þessi villa stafar stundum af því að forritinu misheppnast að lesa einhvern hluta af frumstillingaskránni ORDAALDA.INI, og því má reyna að eyða henni úr möppunni Windows, og reyna svo ræsingu á nýjan leik. Einnig má reyna að sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 14
Villuboð á ensku:
Out of string space.
Skýring: Skortir vinnsluminni. Þessi villa er hliðstæð við villu 7 hér að ofan.
Lausn: Sjá villu 7.

Villa 28
Villuboð á ensku:
Out of stack space.
Skýring: Valkosturinn "Ræsa sem táknmynd" hefur verið gerður virkur í Orðabók Aldamóta útgáfu 2.0 eða eldri.
Lausn: Setja Ræsasemtáknmynd á 0 í ORDAALDA.INI.

Villa 48
Villuboð á ensku:
Error in loading DLL.
Skýring: Einhver af þeim DLL skrám sem Tölvuorðabókin notar, er ónothæf. Í sumum tilfellum, þegar þessi villa hefur verið tilkynnt og málið hefur verið skoðað, hefur komið í ljós að ein DLL skráin er í þjöppuðu formi (þótt nafn hennar endi ekki á undirstriki). Skrár eru gjarnan í þjöppuðu formi á disklingunum, en eiga að afþjappast þegar forritið er sett upp á tölvuna. Vel er hugsanlegt að skemmd skrá geti valdið þessu sama villuboði. En ómögulegt er að segja hvers vegna þjöppuð skrá hefur komist óþjöppuð inn á kerfið, að ekki sé talað um skemmda skrá.
Lausn: Slökkva á öllum forritum. Eyða eftirfarandi skrám og prófa svo uppsetningu á ný: MSAES110.DLL, MSAJT110.DLL, VBDB300.DLL. Þessar skrár eru í möppunni WINDOWS\SYSTEM.

Villa 53
Villuboð á ensku:
File not found.
Skýring 1: Skráin fannst ekki. Í sumum tilfellum stafar þetta af því að skráin MSAES110.DLL, MSAJT110.DLL, MSAJT112.DLL eða MSAJT200.DLL er ekki fyrir hendi inni í WINDOWS\SYSTEM. Skráin VBDB300.DLL er þá að biðja um einhverja þessarra skráa en þær eru ekki tiltækar.
Lausn 1: Slökkva á öllum forritum. Ef um Tölvuorðabókina er að ræða, útgáfu 2.1 - 2.11b, þarf að nota forritið Úttekt til að taka Tölvuorðabókina af tölvunni. Svo má eyða eftirfarandi skrám úr WINDOWS\SYSTEM möppunni: MSAES110.DLL, MSAJT110.DLL, VBDB300.DLL (athugið að í stað þess að eyða skránum má líka gefa þeim ný nöfn, svo þær verði óvirkar. Til dæmis má setja dollaramerki ($) í stað síðasta L-sins). Að svo búnu skal setja hugbúnaðinn inn á tölvuna á ný. Þeir sem kunna að nota EXPAND.EXE geta notað það forrit til að setja þessar þrjár skrár inn á tölvuna á ný af disklingi 1, í stað þess að taka allan hugbúnaðinn af tölvunni og setja hann inn á ný.
Skýring 2: Reynt var að eyða skrá á disklingi sem var með ritvörn á.
Lausn 2: Taka ritvörn af disklingnum, þ.e. að loka fyrir gatið sem er hægra megin á honum þegar límmiðinn snýr fram og upp.

Villa 57
Villuboð á ensku:
I/O Device Error.
Skýring: Ekki hægt að lesa af, rita á eða eyða af diskinum. Í mörgum tilfellum kemur þetta villuboð við uppsetningu hugbúnaðar og þá virðist einsýnt að skrárnar hafa ekki ritast alveg rétt á disklinginn við fjölföldun.
Lausn: Prófa að keyra Scandisk á disklinginn (getur þurft að fara í MS-DOS Prompt og rita SCANDISK A:. Í sumum tilfellum getur það forrit gert disklinginn nothæfan, en ef það gengur ekki, þarf að athuga hvort hægt sé að fá efni disklings sent af vefsíðu (sjá efst í þessu skjali) eða hafa samband við útgefanda til að fá nýjan diskling.

Villa 70
Villuboð á ensku:
Permission denied.
Skýring: Getur komið þegar forrit þarf að rita á diskling og ritvörn er á honum.
Lausn: Fjarlægja ritvörnina (loka gatinu á disklingnum) og reyna aðgerðina aftur.

Villa 75
Villuboð á ensku:
Path/File Access error.
Skýring: Getur komið þegar forrit þarf að meðhöndla skrá sem er með Read-Only stillingu.
Lausn: Fjarlægja Read-Only stillinguna, með því að finna skrána og hægrismella yfir henni og velja Properties og taka hakið úr reitnum Read-Only.

Villa 76
Villuboð á ensku:
Path not found.
Skýring 1: Fann ekki slóð. Í sumum tilfellum er hreinlega um að ræða villu í hugbúnaðinum, þar sem reynd er einhver vinnsla án þess að mappa sé til staðar. En einnig getur þetta komið fyrir við uppsetningu á net, þar sem skortir nægileg réttindi til að setja hugbúnað inn á miðlarann (server).
Lausn 1: Sé verið að setja upp á net, má reyna að gera uppsetninguna með meiri réttindum. Ef til vill þarf að hafa samband við söluaðila netkerfisins til að ráða fram úr því. En ef ekki er um slíkt að ræða, skal hafa samband við Alnet eða sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).
Skýring 2: Komi þetta villuboð þegar þrýst er á hnappinn Glósa, og um er að ræða útgáfu 2.0 er skýringin sennilega sú að línan Glósuskjal í ORDAALDA.INI hefur að geyma möppunafn sem ekki er til lengur. Er búið að laga í útgáfu 2.0a.
Lausn 2: Nota File Manager eða Windows Explorer til að fara inn í möppuna WINDOWS, finna þar skrána ORDAALDA.INI og í henni er línan Glósuskjal. Eyða því sem er aftan við = merkið og vista skrána á ný.
Skýring 3: Verið er að setja orðabókina inn í annað sinn, en DIR línan í skránni ORDAALDA.INI vísar á skráasafn sem er ekki lengur til.
Lausn 3: Nota File Manager eða Windows Explorer til að fara inn í möppuna WINDOWS, finna þar skrána ORDAALDA.INI og í henni er línan DIR. Eyða því sem er aftan við = merkið og vista skrána á ný. Hefur verið lagað í nýrri útgáfum.
Skýring 4: TMP breytan í AUTOEXEC.BAT vísar á möppu sem er ekki lengur til. Lagað í útgáfu 2.01.
Lausn 4: Skoða inn í skrána AUTOEXEC.BAT (hún er í rótarskrá tölvunnar) með type autoexec.bat. Þar á að standa lína eins og SET TEMP=C:\TEMP. Gera md \temp til að mynda möppuna TEMP í tölvunni.

Villa 91
Villuboð á ensku:
Object variable or With block variable not set.
Skýring 1: Hafi þetta villuboð birst í tengslum við að sótt var endurbót 3.1 af Tölvuorðabókinni, má rekja ástæðuna til forritunarmistaka í þeirri útgáfu þegar dönsk-íslensk orðabók er til staðar.
Lausn 1: Sækja útgáfu 3.2 eða nýrri. Til bráðabirgða má einnig eyða skránni Ordaalda.ini í Windows (eða Winnt) möppunni og gæta þess svo að Dönsk-íslensk orðabók sé ekki valin þegar orðabókinni er lokað.
Skýring 2: Þetta villunúmer tengist stundum því að misheppnast hefur að opna gagnaskrá. Ástæðan getur þá verið sú að forritið er að reyna að nota gagnaskrá sem mynduð var með nýrri útgáfu af skránni VBDB300.DLL en þeirri sem nú er í notkun.
Lausn 2: Hafi ekkert verið vistað í aukaorðabók eða einkaskrá má eyða skránni AUKA.DAL í orðabókarmöppunni. Annars þarf að taka í notkun eldri útgáfu af VBDB300.DLL (skráin á að vera í Windows\System) eða breyta nafni gagnaskrárinnar sem verið er að reyna að opna. Í Tölvuorðabókinni er hér gjarnan um að ræða gagnaskrána AUKA.DAL. Þessi skrá á að vera í sömu möppu og hugbúnaðurinn sjálfur (t.d. möppunni ORDABOK) og hafa að geyma þær viðbætur sem notandi hefur gert (t.d. ný orð sem hann hefur bætt í Tölvuorðabókina). Teljirðu að skráin sé tóm má eyða henni. Ný skrá er svo mynduð í næstu ræsingu forritsins.
Skýring 3: Gagnaskrá vantar, t.d. Enisalda.dal, Isenalda.dal eða Dkis.skr.
Lausn 3: Setja forritið inn á nýjan leik.
Skýring 4: Ef þessi villa kemur þegar orðabókin er ræst úr Word 6 er hugsanlegt að vanti skrána OLE2PROX.DLL inn í WINDOWS\SYSTEM. Önnur ástæða er að Tip of the Day skjárinn er enn á í Word.
Lausn 4: Setja skrána OLE2PROX.DLL inn í WINDOWS\SYSTEM. Hún fylgir Word 6 (er á diski 1).
Skýring 5: Tip of the Day skjárinn er enn á í Word, þegar reynt er að opna orðabókina í Word 6, í útgáfum 2.0 - 2.1.
Lausn 5: Taka Tip of the Day myndina af skjánum. Þó gildir þetta aðeins fyrir notendur að Orðabók Aldamóta fyrir útgáfu 2.01, því þetta var lagað í útgáfu 2.01.

Villa 93
Villuboð á ensku:
Invalid pattern string.
Skýring: Eldri útgáfur af Tölvuorðabókinni gerðu ekki ráð fyrir að notandi stillti Windows til að nota annað tungumál en íslensku. Í nýrri útgáfum skiptir þetta ekki máli.
Lausn: Vantar að velja íslensku í Control Panel - International (Win3) eða Control Panel - Regional Settings (Win95). Einnig má sækja nýja útgáfu, til að þessi stilling skipti ekki máli (sjá efst í þessu skjali).

Villa 94
Villuboð á ensku:
Invalid use of Null.
Skýring: Í flestum tilfellum táknar þetta að forritið gerir ákveðna villu þegar það reynir að lesa úr tómu sviði í gagnaskrá.
Lausn: Fá nýrri útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 326
Villuboð á ensku:
Runtime error 326. Resource identifier 306 not found.
Skýring: Við uppsetningu hefur verið valið að setja forritið í rótarskrána á harða diskinum (t.d. C:\) en það er ekki leyft.
Lausn: Setja orðabókina í einhverja undirmöppu. Venjuleg staðsetning er C:\Program Files\Ordabok. Villan kemur ekki í útgáfum 3.0b og nýrri.

Villa 339
Villuboð á ensku:
Component <skráarnafn> not correctly registered: file is missing or invalid.
Skýring: Í stað <skrárnafn> hér að ofan stendur gjarnan nafn á einhverri .OCX skrá (t.d. COMDLG32.OCX). Þessi villuboð geta stafað af því að viðkomandi skrá er ekki til staðar í Windows\System eða þá að hún er ekki rétt skráð í Windows Registry.
Lausn: Athuga hvort viðkomandi skrá sé til staðar í Windows\System. Séu skráin ekki til staðar í Windows\System skal Tölvuorðabókin sett inn á nýjan leik. En sé skráin til staðar í Windows\System má reyna eftirfarandi:

  1. Endurræsa tölvuna.
  2. Ýta á Start-hnappinn. Velja Run. Rita regsvr32 windows\system\nafnskrárinnar (þar sem nafnskrárinnar er það nafn sem tilkynnt var í villuboðinu). Ýta svo á OK hnappinn.
  3. Reyna að ræsa Tölvuorðabókina.
  4. Gangi þetta ekki, þarf að fara inn í Windows\System og umskíra skrána (nota t.d. comdlg32.oc í stað comdlg32.ocx) og setja svo Tölvuorðabókina inn á ný.

Villa 380
Villuboð á ensku:
Invalid property value.
Skýring: Þessi villa getur komið í nokkuð margháttuðum kringumstæðum og stafar af því að forritið er að reyna að birta eitthvað sem ekki er tiltækt.
Lausn: Ef þetta gerist í uppsetningarforriti er stundum hægt að leiðrétta með því að setja inn letrið MS Sans Serif með Control Panel. En ef um aðrar kringumstæður er að ræða, er best að athuga hvort hægt sé að fá nýrri útgáfu af forritinu (sjá efst í þessu skjali). Ef þessi villa kemur upp þegar verið er að opna glósuskjal í Tölvuorðabókinni, er líklegt að ekki sé lengur tiltækt það letur sem síðast var notað á glósuskjöl. Fá má nýrri útgáfu (sjá efst í þessu skjali), sem leiðréttir þetta.

Villa 429
Á við um útgáfu:
2.5 og nýrri.
Villuboð á ensku: ActiveX component can't create object or return reference to this object.
Skýring 1: Einhverjar af þeim skrám sem nauðsynlegar eru til að keyra Tölvuorðabókina eru ekki til staðar. Sé verið að reyna að ræsa forritið á netútstöð, getur villan komið vegna þess að hún hefur ekki verið sett upp á þeirri tölvu. Ástæðan getur líka almennt verið sú að eina eða fleiri DLL skrám vanti sem forritið þarf á að halda. Þær skrár eru flestar í Windows\System.
Lausn 1: Prófa að ræsa tölvuna á nýjan leik. Setja Tölvuorðabókina aftur upp fyrir þá tölvu sem verið er að reyna að ræsa hana á.
Skýring 2: Þessi villa getur stafað af því að gagnavinnsla er ekki í lagi í tölvunni. Hugsanlega ástæða fyrir því er t.d. sú að notandi hefur endurnýjað Windows kerfið en ekki sett það í sömu möppu og áður. Þá tapast gjarnan tilvísanir á þær gagnavinnsluskrár sem Tölvuorðabókin þarf á að halda. Þessar skrár eru í möppunni Program Files\Common Files\Microsoft Shared\Dao.
Lausn 2: Þessu má oftast kippa í lag með því að nota Windows Explorer til að fara í þessa möppu, finna þar skrána DAO350.DLL, breyta nafninu á henni (t.d. nota DAO350.DL). Setja svo Tölvuorðabókina inn á ný.

Villa 648
Á við um útgáfu:
2.13 og eldri.
Villuboð á ensku: Data access objects require VBDB300.DLL.
Skýring: Skrána VBDB300.DLL vantar á kerfið.
Lausn: Notaðu uppsetningarforritið til að setja hugbúnaðinn inn á nýjan leik. Ef þú ert með Tölvuorðabókina, útgáfu 2.1 - 2.11b, skaltu fyrst nota forritið Úttekt til að taka Tölvuorðabókina út. Þeir sem kunna að nota EXPAND.EXE geta notað það forrit til að setja þessar þrjár skrár inn á tölvuna á ný af disklingi 1, í stað þess að setja allan hugbúnaðinn inn á ný.

Villa 2004
Skýring:
Getur t.d. komið við ákveðnar gagnaaðgerðir þar sem INSERT INTO er notað og diskrými er ekki nægilegt.
Lausn: Útvegaðu meira laust diskrými.

Villa 3015
Texti villuboðs:
Vantar röðunarlykil í gagnaskrá.
Villuboð á ensku: <Index nafn> isn't an index in this table.
Skýring 1: Innsetning orðasafns hefur misheppnast.
Lausn 1: Taka forritið út með Add/Remove Program í Control Panel. Setja forritið svo inn á nýjan leik.
Skýring 2: Kemur í ræsingu. Sennilega kemur þetta þegar nýbúið er að setja inn Dansk-íslenska orðabók og eldri útgáfa (2.1 eða eldri) af ensk-íslensk-enskri orðabók er fyrir á tölvunni.
Lausn 2: Fá nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali). Nýja útgáfan skal sett ofan í þá uppsetningu sem þegar hefur verið gerð. Ekki á að þurfa að breyta neinu öðru.
Skýring 3: Ný útgáfa hefur verið sett inn á annan stað en fyrri útgáfa. Það veldur vandræðum að hafa orðabókina á tveimur stöðum í tölvunni, vegna þess að upplýsingar um slóðir og þess háttar eru geymdar í stillingaskrá (INI skrá). Ef þú hefur orðabókina í tveimur möppum, og reynir að ræsa þá sem síðar var sett inn, athugar hún slóðir að gagnaskrám í INI skránni og reynir að ræsa gagnaskrár sem eru í gömlu möppunni.
Lausn 3: Eyða skránni ORDAALDA.INI í Windows-möppunni og ræsa þá orðabók sem þú ætlar að nota. Þá er gerð ný INI skrá. Einnig má hætta við síðustu uppsetningu (með Add/Remove Programs í Control Panel) og setja orðabókina upp á nýjan leik, en setja hana nú í sömu möppu og eldri útgáfa.

Villa 3019
Villuboð á ensku:
Operation invalid without a current index.
Skýring: Oftast fylgir þessi villa einhverri annarri villu, þ.e. ef til vill hefur misheppnast að opna orðasafn og þá kemur þessi villa þegar reynt er að leita að orði.
Lausn: Komi þessa villa upp í tengslum við aðra villu, t.d. 3078, má reyna að fylgja leiðbeiningum fyrir þá villu. Einnig má reyna að fjarlægja hugbúnaðinn af tölvunni með Add/Remove Programs í Control Panel og setja inn aftur.
Hugsanlegt er einnig, þótt ólíklegt sé, að villan stafi af einhverjum galla í Windows-kerfinu. Hafi allar aðrar lausnir verið reyndar má reyna að enduruppsetja Windows-kerfið. Það er gert með því að keyra Setup.exe á Windows-geisladiskinum.

Villa 3031
Villuboð á ensku:
Not a valid password.
Skýring:
Eldri útgáfa en 3.0 er að reyna að opna gagnagrunn sem fylgir í útgáfu 3.0 eða nýrri. Þetta getur t.d. komið ef útgáfa 3.0 er í einni möppu og eldri útgáfa hefur verið sett í aðra möppu.
Lausn: Það er mjög óæskilegt að hafa mismunandi Tölvuorðabækur í mismunandi möppum og þær virka ekki rétt saman, og eru ekki allar tiltækar nema þær séu allar í einni og sömu möppunni.

Villa 3040
Villuboð á ensku:
Disk I/O Error during read.
Skýring: Einhver skrá gæti hafa spillst.
Lausn: Slökkva á öllum forritum og slökkva á tölvunni. Ræsa hugbúnaðinn aftur og athuga hvort villan kemur enn við sömu aðstæður og fyrr (t.d. ef leitað er að sama atriði og áður). Komi villan ekki, skal ekkert aðhafst því þá hefur sennilega verið um villu gagnasókn að ræða. En ef villan kemur fram aftur, getur reynst vel að framkvæma SCANDISK í MS-DOS Prompt.

Villa 3041
Villuboð á ensku:
Incompatible database version.
Skýring: Eitthvert forrit hefur sett inn nýrri útgáfu af skránni VBDB300.DLL (frá 1994 eða síðar). Sé svo mynduð ný aukaorðabók í Tölvuorðabókinni eða henni þjappað með tilheyrandi skipun, og loks sett inn eldri útgáfa af VBDB300.DLL (t.d. frá 1993), kemur þessi villa fram.
Lausn: Hafi engin gögn verið sett í aukaorðabókina í Tölvuorðabókinni er einfaldast að eyða skránni. Það er skráin AUKA.DAL. Slökktu á öllum forritum áður en þú gerir þessa eyðingu. Að svo búnu ætti notkun að vera eðlileg. Séu aftur á móti verðmætar upplýsingar í skránni, er betra að hafa samband við Alnet til að fá viðhlítandi lausn.

Villa 3043
Villuboð á ensku:
Disk or network error.
Skýring: Sennilega vantar möppuna TEMP eða TMP á það drif sem reynt er að keyra Tölvuorðabókina á.
Lausn: Stofna möppuna TEMP eða TMP á drifinu. Þetta má t.d. gera í Windows Explorer.

Villa 3044
Villuboð á ensku:
'Item' isn't a valid path.
Skýring: Forritið virðist ekki finna ákveðna slóð, og stafar það af villu í útgáfum 2.1 - 2.11b af Tölvuorðabókinni.
Lausn: Fá nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 3051
Villuboð á ensku:
The Microsoft Jet database engine cannot open the file <name>. It is already opened exclusively by another user or you need permission to view its data.
Skýring 1: Sé verið að reyna að ræsa Tölvuorðabókina á netkerfi, getur skýringin verið sú StaðsetningAukaorðasafns í Ordaalda.ini vísar á möppuna á netþjóninum.
Lausn 1: Eyða Ordaalda.ini (í Windows eða Winnt möppunni) og ræsa svo Ordaalda.exe af netþjóninum til að setja forritið upp á ný.
Skýring 2: Röng slóð er í Dir línunni í Ordaalda.ini.
Lausn 2: Lagfæra slóðina í Dir línunni í Ordaalda.ini (í Windows möppunni).
Skýring 3: Skrá sem verið er að opna er read-only. Þá getur verið að skráin sé á netkerfi og að viðkomandi notandi hafi ekki ritréttindi á þessa skrá. Einnig getur verið að skráin hafi af einhverri ástæðu fengið read-only stöðu. Það getur t.d. gerst ef hún hefur verið sett á geisladisk og svo þaðan inn á harðan disk.
Lausn 2: Sé verið að reyna að opna skrá sem er á netkerfi þarf að biðja kerfisstjóra að útvega ritréttindi á skrána, ef það er hægt. Sé skráin á tölvu notandans, má athuga hvort hún hefur read-only stillingu, með því að hægrismella yfir henni, velja Propertis og athuga stillinguna Read-only. Sé merkt við það, má afmerkja það.

Villa 3078
Villuboð á ensku:
The Microsoft Jet Database engine cannot find the input table or query <name>. Make sure it exists and that its name is spelled correctly.
Skýring 1: Þessi villa kemur í útgáfu 3.0 ef verið er að ræsa Tölvuorðabókina og skráin Auka.dal er ekki fyrir hendi, né sú orðasafnsskrá sem síðast var notuð. Hafi t.d. dönsk-íslensk verið inni en henni eytt og svo sett inn ensk-íslensk/íslensk-ensk.
Lausn 1: Þetta villuboð kemur við ofangreindar aðstæður, en aðeins í fyrstu ræsingu. Næst þegar forritið er ræst kemur villan ekki. Þetta hefur verið lagað í útgáfu 3.0b og nýrri (sjá efst á þessari síðu).
Skýring 2: Hugsanlega er orðasafn gallað. Komið hefur fyrir að innsetning orðasafns hefur misheppnast vegna þess að viðkomandi skrá hefur verið inni fyrir og verið í notkun hjá einhverjum notanda um leið og uppsetning var gerð.
Lausn 2: Reyna má að fjarlægja forritið, og setja það svo inn aftur. Gæta þarf þess að enginn sé að nota orðasafnsskrárnar (Enisalda.dal, Isenalda.dal og Dkis.skr).

Villa 3159
Villuboð á ensku: Not a valid bookmark.
Skýring: Getur komið þegar Tölvuorðabókin, útgáfa 3.0, er keyrð á NT Workstation.
Lausn: Sækja útgáfu 3.0a eða nýrri (sjá efst í þessu skjali).

Villa 3204
Villuboð á ensku: Database already exists.
Skýring: Þessi villa kom inn vegna forritunarmistaka í Tölvuorðabókina útgáfu 3.4a og má koma í veg fyrir hana með nýrri útgáfu.
Lausn: Sækja nýja útgáfu (sjá efst í þessu skjali).

Villa 3228
Villuboð á ensku: Invalid CollatingSequence setting in the Paradox key of the Windows Registry.
Skýring: Skýring er ekki kunn.
Lausn: Eftirfarandi lausn ætti að duga:
1. Slökkva á forritinu. Smella á Start-hnappinn í Windows og velja Run. Rita regedit og ýta á Enter til að ræsa Registry Editor.
2. Þar er valin mappan \HKEY_LOCAL_MACHINE\SOFTWARE\Microsoft\Jet\3.5\Engines\Paradox og smellt á CollatingSequence. Sé mappan Paradox ekki fyrir hendi, sjá hér að neðan.
3. Gera Edit-Modify. Rita Ascii (eða með hástöfum ASCII) eða International í Value reitinn. Slökkva á Regedit, endurræsa tölvuna og reyna að ræsa Tölvuorðabókina á ný.
Sé Paradox mappan ekki fyrir hendi er smellt á Engines og valið Edit-New-Key. Þar er ritað Paradox. Síðan er valið Edit-New-String Value. Þar er ritað CollatingSequence. Gera Edit-Modify. Rita Ascii (eða með hástöfum ASCII) eða International í Value reitinn. Slökkva á Regedit og reyna að ræsa Tölvuorðabókina á ný.

Villa 3315
Villuboð á ensku: Field <nafn> can't be a zero-length string.
Skýring: Kemur þegar stofnað er nýtt orð í aukaorðabókinni, ef ekkert er í skýringarreitnum.
Lausn: Til að komast framhjá villunni í útgáfu 2.5 má einfaldlega setja einhverja skýringu með orðinu sem verið er að vista. Þessi villa hefur verið fjarlægð í útgáfu 2.5a, eða nýrri, sem fáanleg er á vefnum (sjá efst í þessu skjali).

Villa 3343
Villuboð á ensku: Unrecognized database format.
Skýring 1:
Kemur þegar reynt er að ræsa Tölvuorðabókina. Tölvuorðabókin getur ekki farið í gang vegna þess að sumar skrárnar hafa ekki komist almennilega inn á tölvuna. Sé um að ræða útgáfu 3.0 eða nýrri hefur sennilega misheppnast að setja Tölvuorðabókina inn.
Lausn 1: Fjarlægja Tölvuorðabókina af tölvunni, og setja hana svo inn aftur.
Skýring 2: Kemur þegar reynt er að ræsa Tölvuorðabókina. Tölvuorðabókin getur ekki farið í gang vegna þess að sumar skrárnar hafa ekki komist almennilega inn á tölvuna. Sé um að ræða útgáfu 2.5 eða eldri er sennilega einn af disklingum orðabókarinnar gallaður.
Lausn 2: Hafa samband við Mál og menningu, þjónustudeild í síma 510 2520, til að fá nýjan diskling.

Villa 3420
Villuboð á ensku: Object invalid or no longer set.
Skýring: Ekki er vitað hvað veldur þessu.
Lausn: Reynandi er að fjarlægja hugbúnaðinn af tölvunni með Add/Remove Programs í Control Panel og setja hann svo inn aftur.

Villa 3447
Á við um útgáfu: 2.5 og nýrri.
Villuboð á ensku: The Jet VBA file (VBAJET.dll for 16-bit versions, or VBAJET32.dll for 32-bit versions) failed to initialize when called. Try reinstalling the application that returned the error.
Skýring 1: Svo virðist sem í einhverjum tilfellum setji uppsetningarforrit Tölvuorðabókarinnar ekki inn nýja skrá af VBAJET32.DLL, jafnvel þótt sú sem fyrir er sé eldri.
Lausn 1: Finna skrána VBAJET32.DLL í Windows\System eða Winnt\System32 möppunni og gefa henni nýtt nafn (t.d. VBAJET32.DL). Setja svo hugbúnaðinn inn á tölvuna á nýjan leik.
Skýring 2: Fleiri skrár gætu komið við sögu.
Lausn 2: Dugi ofangreind lausn ekki, má reyna að umskíra fleiri skrár sem þessu tengjast. Skrárnar  eru allar í Windows\System eða Winnt\System32 nema annað komi fram hér, og þær heita:

DAO350.dll (í Program Files\Common\Microsoft Shared\Dao)
MSJet35.dll
MSJInt35.dll
MSJtEr35.dll
MSVCRT40.dll
VB5DB.dll

Rétt er að athuga útgáfunúmer á hverri skrá áður en hún er umskírð. Það má gera með því að hægri smella yfir henni, velja Properties og smella svo á Version flipann. Rétt útgáfunúmer má sjá í skránni Setup.lst sem er á geisladiskinum.

Villa 50003
Á við um útgáfu: 2.5 og nýrri.
Villuboð á ensku: Unexpected error.
Skýring: Fyrir þessu villuboði geta verið margar ólíkar ástæður, en einn möguleiki er sá að það tengist skránni COMDLG32.OCX.
Lausn: Það er engin lausn á þessu fyrir notandann önnur en sú að láta Alnet vita.


Breytt / updated: 02 febrúar 2004.